Hátækni opnar glæsilegt nýtt vefsvæði byggt á Eplica vefumsjónarkerfinu
Hátækni er líklega þekktast fyrir að vera umboðsaðili Nokia á Íslandi og sem slíkt þarf fyrirtækið að kynna farsíma Nokia með viðeigandi hætti.
Það var þannig mikill metnaður lagður í að gera vefnotendum kleift að skoða þær vörur sem Hátækni býður upp á. Einnig er hluti vefsins notaður til kynningar á Hita- og loftræstideild fyrirtækisins en Hátækni hefur um árabil rekið eina þekktustu loftræstideild landsins.
Vefurinn var hannaður, vefaður og settur saman af Hugsmiðjunni.
Um Hugsmiðjuna
Hugsmiðjan ehf. er fyrirtækið á bak við eplica. Það sérhæfir sig í hverskonar hugbúnaðargerð og hefur síðan í jánúar 2001 smíðað hugbúnaðarkerfi sem nú eru markaðssett undir eplica nafninu. Markmið fyrirtækisins er að veita viðskiptavinum sínum bestu fáanlegu lausnir, aðstoða þau við hagræða í rekstri, bæta upplýsingaflæði til viðskiptavina og starfsmanna og hækka þjónustustig án aukins tilkostnaðar.
Smíði vefumsjónarkerfisins eplica hófst árið 2001 en sala þess hófst fyrir alvöru ári síðar. Á þeim tíma sem liðinn er hefur fjöldi ánægðra notenda vaxið hratt og er ástæða til að þakka öllum þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem hafa treyst okkur fyrir vefmálum sínum.
Vefumsjónarkerfið eplica er fyrst og fremst efnismiðlunarkerfi sem getur birt gögn frá ýmsum upplýsingaveitum og miðlað þeim áfram til notenda með mismunandi tæknilegar þarfi.
Auk vefumsjónarkerfis hefur fyrirtækið nú hafið sölu á eplica Application Builder sem sem nýtist við gerð á veflægum hugbúnaði og getur stytt þróunartíma verulega og aukið gæði hans til muna.
Nánari upplýsingar um fyrirtækið eru veittar í síma 5 500 900 eða um netfangið info@eplica.is. Einnig er hægt að panta kynningu á vörum fyrirtækisins hér á vefnum.
Að öðrum kosti er hægt að kíkja víð:
Hugsmiðjan ehf. / Eplica ehf.
Skúlagötu 32-34
101 Reykjavík


