Fréttir

Nýr vefur sem beitir veftækni á nýstárlegan hátt stórbætir aðgengi sjómanna að fréttum

20.5.2004

Skip.is vinsælasti fréttavefur landsins um málefni sjávarútvegsins hleypti nýverið af stokkunum nýrri og byltingarkenndri þjónustu við sjómenn.

Nýja þjónustan ber nafnið Sjávarfréttir og miðar að því að miðla upplýsingum frá ýmsum fréttaveitum bæði öðrum veitum á vegum Framtíðarsýnar eiganda Skip.is og öðrum. Notast er við nýja þjónustu, Sjópóstur, frá Símanum til að miðla gögnum frá Sjávarfréttum út til skipanna.

Þeim sjómönnum sem hafa hug á að nýta þessa þjónustu Skip.is býðst að setja vefinn www.skip.is upp á tölvu um borð og sækja svo uppfærslur eftir þörfum og áhuga.

Mikið úrval af efnisveitum

Í þeirri útgáfu sem sett er upp um borð eru flestar grunnupplýsingar sem finna má á vefnum Skip.is en auk þess er þessi útgáfa vefsins sérstaklega úr garði gerð til að hægt sé að sækja nýjustu fréttir og birta á vefnum. Boðið er upp á 15 efnisveitur og geta sjómenn valið hverjar þeirra þeir vilja hafa uppfærðar. Þær fréttaveitur sem boðið er upp á eru:

  • Fréttir af Skip.is virka daga
  • Fréttir úr Fiskifréttum um helgar
  • Fréttir af Textavarpi: Innlendar, erlendar og íþróttafréttir
  • Fréttir af Mbl.is: Innlendar erlendar og íþróttafréttir
  • Íþróttaúrslit (getraunaseðlar og Lengjan í undirbúningi)
  • Veðurfregnir frá Veðurstofu Íslands: Sjóveðurspá, spá fyrir allt landið, loftþrýstingur o.fl.
  • Ölduhæð frá Siglingastofnun Íslands
  • Frá hinu opinbera: Fréttir og tilkynningar
  • Viðskiptafréttir af VB.is
  • Gengi gjaldmiðla

Almennt um þjónustuna

Þjónustan verður í áskrift. Í byrjun fá áskrifendur sendan geisladisk (Sjávarfréttir) sem þeir hlaða í tölvu sína og á honum er allt umhverfi líkt og á Skip.is á Netinu. Þegar menn tengjast Sjópósti Símans fá þeir sendar uppfærslur sem sjálfkrafa rað­ast á réttan stað í kerfinu. Haldið er utan um notkun og menn fá aðeins það sem þeir hafa ekki sótt áður og ekki eldra efni. Hver um sig getur stillt hve oft og hvenær upp­færslur berast.

Hagræðing fyrir útgerðina

Kostnaður skiptist í tvennt, árgjald og sóknargjald. Inni í árgjaldinu er ávallt nýjasta útgáfa af grunnkerfi Sjávarfrétta (geisladiskurinn með grunnkerfinu). Svo er greitt sókn­ar­gjald fyrir hverja sótta uppfærslu. Árgjald er 9.800 kr., sóknargjald er 150 kr. (upphæðir án vsk.). Aðeins er greitt sóknargjald fyrir eina uppfærslu á dag þótt fleiri séu sóttar. Ekkert er rukkað fyrir þá daga sem engar upplýsingar eru sóttar (t.d. ef skip er ekki á sjó.) Reikna má með að það taki um 20-40 sekúndur að sækja hverja uppfærslu um NMT (minna ef uppfærslur eru sóttar oft). Áskrifendur geta valið að fækka einingum í pakkanum og stytta þar með sóknar­tímann. Áskrifendur fá úthlutað sín­um síðum á vefnum og geta þar stillt áskrift sína á ýmsan máta, breytt upplýsingum um sig og skoðað notkunina.

Við það að nota Sjópóstinn gefst útgerðum færi á að útvega hverjum sjómanni netfang sem nýtist honum á meðan báturinn er á sjó og einfaldað þeim þannig öll samskipti við aðila í landi. Stærri útgerðir fá kostnað sundurliðaðan sem einfaldar þeim til muna uppgjörsvinnu.

Hlutur Hugsmiðjunnar í verkefninu

Hugsmiðjan hefur komið að smíði vefsvæðisins Skip.is frá því á fyrstu dögum vefsins. Vefurinn er einn af þeim metnaðarfyllri sem fyrirtækið hefur komið að og því engin furða að Hugsmiðjan fagnaði þeim hugmyndum að miðla honum til allra íslenskra skipa.

Við þetta verkefni var sérstaklega mikilvægt að það gagnamagn sem sent er um borð í skipin sé eins lítið og mögulegt. Þetta orsakast að því að Internet tenging þeirra fer á tíðum um gervihnött og óhentugt getur verið að ná í mikið af upplýsingum um slíkt samband. Til að mæta þessar kröfu hannaði Hugsmiðjan sérstakan birtingaham á vefinn um borð í skipunum sem getur nýtt sér gögn í þjöppuðu og einangruðu formi. Fullyrða má að léttara, gagnatengt, vefsvæði (í Kb. talið) sé ekki til á landinu og þykir völundarsmíð.

Öll framkvæmd og smíði vefsins og tengingu við gagnaveitur var í höndum Hugsmiðjunnar. Útlitshönnun var í höndum hönnuða Hugsmiðjunnar, smíði á grunnútgáfu Skip.is vefsins sem síðan var settur upp á geisladisk með það fyrir augum að hægt væri að setja inn í hann fréttir frá mismunandi fréttaveitum sem myndu nýta sér Sjópóst þjónustu Símans.

Um Sjávarfréttir

Útgefandi Sjávarfrétta er Framtíðarsýn sem einnig gefur út Sjómannaalmanak Skerplu. Almanakið er innifalið í áskrift að Sjávarfréttum enda nauðsynlegt um borð í hverju skipi. Með Sjómannaalmanaki Skerplu fylgir geisladiskur (Skip.CD) með öllu efni sem er á Skip.is, fyrir utan fréttirnar. Tenging er á milli Sjávarfrétta og Skip.CD.

Frekari upplýsingar veitir Þórarinn Friðjónsson, verkefnastjóri hjá Framtíðarsýn, sími 569-6694, gsm 896-3727, netfang toti@skip.is.

Nánari upplýsingar um Sjópóst Símans má finna á slóðinni www.sjopostur.is.

Um Hugsmiðjuna

Merki eplicaHugsmiðjan ehf. er fyrirtækið á bak við eplica. Það sérhæfir sig í hverskonar hugbúnaðargerð og hefur síðan í jánúar 2001 smíðað hugbúnaðarkerfi sem nú eru markaðssett undir eplica nafninu. Markmið fyrirtækisins er að veita viðskiptavinum sínum bestu fáanlegu lausnir, aðstoða þau við hagræða í rekstri, bæta upplýsingaflæði til viðskiptavina og starfsmanna og hækka þjónustustig án aukins tilkostnaðar.

Smíði vefumsjónarkerfisins eplica hófst árið 2001 en sala þess hófst fyrir alvöru ári síðar. Á þeim tíma sem liðinn er hefur fjöldi ánægðra notenda vaxið hratt og er ástæða til að þakka öllum þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem hafa treyst okkur fyrir vefmálum sínum.

Vefumsjónarkerfið eplica er fyrst og fremst efnismiðlunarkerfi sem getur birt gögn frá ýmsum upplýsingaveitum og miðlað þeim áfram til notenda með mismunandi tæknilegar þarfi.

Auk vefumsjónarkerfis hefur fyrirtækið nú hafið sölu á eplica Application Builder sem sem nýtist við gerð á veflægum hugbúnaði og getur stytt þróunartíma verulega og aukið gæði hans til muna.

Nánari upplýsingar um fyrirtækið eru veittar í síma 5500900 eða um netfangið info@eplica.is. Einnig er hægt að panta kynningu á vörum fyrirtækisins hér á vefnum.

Að öðrum kosti er hægt að kíkja við:

Hugsmiðjan ehf. / Eplica ehf.
Skúlagötu 32-34
101 Reykjavík







litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica