Fréttir

Kraumar undir pottunum hjá Sigga Hall

27.5.2004

Veitingastaðurinn Siggi Hall á Óðinsvéum samdi nýverið um notkun Eplica fyrir vefsvæði sitt.

Sigga Hall þarf sjálfsagt ekki að kynna fyrir neinum því hann hefur verið óþreytandi að kenna landsmönnum matargerð í sjónvarpi auk þess að kynna matarmenningu hinna ýmsu þjóða og þjóðarbrota.

En Siggi hefur ekki aðeins skapað sér gott orð hér heima heldur fer orðspor hans á erlendri grundu sífellt vaxandi. Þannig skipaði bandaríska ferðamálatímaritið Condé Nast Traveler veitingastaðinn í röð þeirra 100 veitingastaða í heiminum sem stæðu hvað fremst.

"Það er sérlega ánægjulegt að fá að taka þátt í því að aðstoða jafn framúrskarandi veitingastað við að endurbæta þjónustu sína við viðskiptavini". segir Stefán Baxter framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar.










litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica