Fréttir
Borgarholtsskóli semur um notkun Eplica fyrir nýtt vefsvæði sitt
Einn stærsti framhaldsskóli landsins samdi nýlega við Hugsmiðjuna um uppfærslu á vefsvæði sínu og hyggst byggja nýja vefinn á Eplica vefumsjónarkerfinu.
Um er að ræða stóran og áhugaverðan vef sem meðal annars inniheldur viðbótareininguna Námsskrárkerfi sem Hugsmiðjan smíðaði í samvinnu við Fjölbrautaskólann við Ármúla.
Með nýja vefnum er ætlunin að auðvelda starfsmönnum Borgarholtsskóla að viðhalda vefnum, bæði almennum upplýsingum sem og námsskrá en í skólanum er mjög viðamikið úrval af áföngum sem kenndir eru.

