Fréttir
Hvammsvík semur við Hugsmiðjuna um nýtt vefsvæði
Ferðaþjónustan í Hvammsvík samdi nýverið við Hugsmiðjuna um endurnýjun á vefsvæði sínu.
Í Hvammsvík er rekin margþætt þjónusta á frábæru útivistarsvæði. Þar geta gestir spilað golf, stundað stangveiði og sjóstangveiði, leigt kajak og fengið kennslu í kajakróðri. Þar er einnig hægt að komast í skemmtisiglingar og hópum er veitt sérstök þjónusta.
Á endurnýjaða vefsvæðinu er einnig fyrirhugað að vefsvæðið www.kayak.is fái varanlegan samastað, en þar eru kynntir kajakar sem seldir eru á vegum Hvammsvíkur.

