Fréttir

Félagsmálaráðuneytið opnar vef um málefni fjölskyldunnar

22.5.2004

Fjölskylda.is er skilgetið afkvæmi félagsmálaráðherra, en með þessum nýja vef er markmiðið að auðvelda aðgengi almennings að upplýsingum er varða málefni fjölskyldunnar.

Verkefnum einstaklinga innan fjölskyldna hefur oft verið lýst sem hringrás sem flestar fjölskyldur takast á við og taka efnisflokkar vefsins ákveðið mið af þessari hringrás. Á vefnum er til dæmis fjallað um helstu breytingar sem fjölskyldur kunna að takast á við, eins og að eignast barn, giftingu, skilnað eða andlát einhvers nákomins.

Hugsmiðjan óskar félagsmálaráðuneytinu til hamingju með vel heppnaðan vef.










litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica