Fréttir
Ný vefur sem fjallar um ríkisfjármál og ríkisrekstur opnaður
Geir H. Haarde fjármálaráðherra opnaði í dag nýtt vefsvæði á vef fjármálaráðuneytisins, ríkiskassinn.is. Vefur þessi er ætlaður almenningi og fjallar um ríkisfjármál og ríkisrekstur. Um er að ræða upplýsinga- og fræðsluvef þar sem ofangreint efni er sett fram á aðgengilegan og myndrænan hátt.
Á vefnum er fjallað um ríkið sem þátttakanda í efnahagslífinu, um verkefni ríkisins, hvernig þau eru ákveðin, um tekjur ríkisins, eignir og skuldir. Einnig er þar að finna ítarlegan orðalista/orðskýringar og léttan spurningaleik þar sem þátttakendur geta spreytt sig á spurningum er varða rekstur ríkisins.
Það er von fjármálaráðuneytisins að þessi vefur muni gagnast almenningi og varpa skýrara ljósi á rekstur ríkisins og þátttöku þess í efnahagslífinu

