Lýðheilsustöðin fagnar 1 árs afmælis og opnar nýjan vef
Tilvalið þótti einnig að nota þetta tækifæri til að kynna starfsemi Lýðheilsustöðvar og var því gestum boðið til kynningarfundar og afmælisfagnaðar í Iðnó á afmælisdaginn 1. júlí 2004.
Dagskráin hófst með því að Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, bauð gesti velkomna en að því loknu undirritaði Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, nýja reglugerð um landsnefnd og ráðgefandi ráð Lýðheilsustöðvar. Því næst tók Ragnheiður Haraldsdóttir, skrifstofustjóri ráðuneytisins, til máls og sagði hún stuttlega frá aðdraganda að stofnun og tilurð Lýðheilsustöðvar. Anna Elísabet hóf svo kynningu á starfsemi Lýðheilsustöðvar þar sem hún fór m.a. yfir fyrsta starfsárið og síðan snertifleti og samstarf við aðrar stofnanir í landinu, m.a. Landlæknisembættið og heilsugæsluna. Einnig tóku til máls Laufey Steingrímsdóttir, sviðsstjóri rannsókna, og Haukur Þór Haraldsson, sviðsstjóri verkefna.
Þá var komið að formlegri opnun heimasíðunnar og fórst ráðherra það einkar vel úr hendi. Bryndís Kristjánsdóttir, sviðsstjóri samskipta, gaf nokkra innsýn í efni heimasíðunnar og sagði frá uppbyggingu hennar. Þar kom m.a. fram hvernig efni af fjórum heimasíðum hefði nú verið komið fyrir á einum stað, ýmsar nýjungar nefndar og sagt frá því að ákveðið hefði verið að fara í samstarf við Hugsmiðjuna m.a. vegna þess að þar er hugað að þörfum sjóndapurra eða blindra við uppbyggingu á heimasíðum.
Við hjá Hugsmiðjunni óskum Lýðheilsustöðinni til hamingju með afmælið og nýtt og stórglæisilegt vefsvæði.
