Fréttir

Eplica knýr nýja bloggþjónustu Hex

12.7.2004

Hex hugbúnaður hefur sett upp vefsetrið www.hexia.net, en þeim vef er ætlað að þjóna erlendum notendum bloggkerfis Hex, sem hér á landi gengur undir nafninu Símblogg og GSMblogg.

Á Hexia.net er að finna skráningarsíður á fjórum tungumálum, íslensku, ensku, dönsku og sænsku ásamt aðgangi að bloggkerfinu sjálfu.

Þar er einnig að finna hjálparsíður kerfisins, ásamt áhugaverðu efni frá notendum og fréttaefni frá ýmsum fréttavefjum sem gerir notendum Hexia.net auðvelt að fylgjast með því sem er að gerast.

"Við völdum Eplicu undir Hexia.net af því að með henni er auðvelt að sjálfvirknivæða vefinn", sagði Þórarinn Stefánsson, framkvæmdastjóri Hex. "Sjálfvirk tenging efnisveitna við Eplicu gerir okkur kleift að halda úti síbreytilegum vef, þar sem nýtt efni bætist inn nánast á hverri mínútu án þess að mannshöndin komi þar nokkurs staðar nærri. Það skiptir sköpum fyrir fyrirtæki eins og okkar."

www.hexia.net verður einnig gátt að ýmsum virðisaukandi farsímaþjónustum Hex sem ætlaðar eru einstaklingum.

Eplica-high-res peng"Það er frábært að sjá starfssvið eplica stækka með þessum hætti", sagði Stefán Baxter, framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar. "Það hefur verið mikilvægt markmið að sjá eplica kerfið notað í svokölluðu "hýsingarumhverfi". Opnun www.hexia.net er stórt og sérstaklega mikilvægt skref í þá átt að Eplica kerfið nái útbreiðslu meðal Þjónustuaðila sem vilja hýsa vefsvæði fyrir stóran hóp fyrirtækja og einstaklinga og veita þeim sérhæfða þjónustu."








litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica