Fréttir

Menntamálaráðherra opnar vef Fjölbrautaskóla Snæfellinga

9.8.2004

Mánudaginn 9. ágúst 2004 opnaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra vef Fjölbrautaskóla Snæfellinga, www.fsn.is.


Frá opnun á vefsvæði Fjölbrautaskóla SnæfellingaRáðherra opnaði vefinn frá skrifstofu sinni í Reykjavík en í anddyri skólans í Grundarfirði fylgdust með opnuninni Guðbjörg Aðalbergsdóttir, skólameistari, ásamt starfsmönnum, skólanefnd og fulltrúa menntamálaráðuneytisins. Á FSn-vefnum eru birt drög að skólanámskrá skólans og hvers kyns upplýsingar um skólastarfið.

Vefurinn er hannaður í samvinnu við Ástþór Jóhannsson og unninn af Hugsmiðjunni í samvinnu við FSN. Skólablogg, sem sett var upp fyrir vefinn, er samstarfsverkefni Hugsmiðjunnar og hugbúnaðarhúsins Hex en það gerir kennurum og nemendum kleift að viðhalda sínum eigin vefsvæðum með notkun hinnar vinsælu blogg tækni.

Þetta verkefni er eitt af mörgum skólaverkefnum sem eru í vinnslu og nýtir Skólablogg. Nánari upplýsingar um Skólablogg fást hjá Hugsmiðjunni og Hex.










litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica