Eplica í heimsreisu með Utanríkisráðuneytinu
Utanríkisráðuneytið velur eplica fyrir allar sendiskrifstofur Íslands erlendis. Um er að ræða tvö megin vefsvæði, annað hýsir almennar upplýsingar um Ísland en hitt hýsir heimasvæði þeirra sextán sendiskrifstofa sem Ísland rekur um víða veröld.
Vefir skrifstofanna verða á mörgum tungumálum og viðhald þeirra verður dreift en yfirumsjón verður í höndum vefstjóra Utanríkisráðuneytisins. Vinna við verkefnið er vel á veg komin en vefirnir verða opnaðir hver af öðrum frá og með komandi hausti.
"Við hjá Hugsmiðjunni lítum á það sem mikla viðurkenningu og traust að vera valdir til að vinna þetta verkefni og munum við gera okkar besta til að standa undir þeim væntingum sem gerðar eru til verkefnisins"
