Fréttir

Vegagerðin velur Eplica Enterpise Edition

25.8.2004

Vegagerðin hefur ákveðið að byggja nýtt vefsetur stofnunarinnar á Eplica EE. Um er að ræða viðamikið verkefni sem hefjast mun af fullum þunga eftir að skipulagningu er lokið snemma vetrar.


Eplica EE fellur mjög vel að rekstrarumhverfi stofnunarinnar þar sem kerfið getur keyrt á hvaða stýrkierfi og gagnagrunni sem er. Vegagerðin mun hýsa Eplica kerfið og tengja það við innri upplýsingakerfi stofnunarinnar.

Haraldur Gunnlaugsson, nýráðin verkefna og framleiðslustjóri Hugsmiðjunnar, mun taka að sér verkstjórn í samvinnu við starfsmenn Vegagerðarinnar.

"Það virðist vera að þau fyrirtæki sem hafa mestu þarfirnar, hvað tæknilega uppbyggingu, sveigjanleika og rekstur varðar, velji Eplica vefumsjónarkerfi." sagði Stefán Baxter, framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar. "Það er sérstaklega ánægjulegt þegar slíkt gerist eftir mjög ítarlega yfirferð yfir kerfið, kosti þess og galla."

Við óskum Vegagerðinni til lukku og óskum þeim velfarnaðar í því krefjandi verkefni að endurskipullgja vefsvæði stofnurarinnar.










litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica