Fréttir

Skemmtivefur Umhyggju opnaður

29.9.2004

Umhyggja, í samvinnu við Símann og Hugsmiðjuna nýjan og glæsilegan skemmtivef þar sem börn og unglingar finna efni sem getur stytt þeim stundir og frætt þau.

Í dag, þann 29.09.2004, kl. 11 opnaði Umhyggja, í samvinnu við Símann og Hugsmiðjuna nýjan og glæsilegan skemmtivef. Á skemmtivef Umhyggju finna börn og unglingar efni sem getur stytt þeim stundir og frætt þau. Á vefnum er lögð áhersla á að benda á efni sem höfðar til þessa aldurshóps en uppfyllir einnig kröfu um það sé laust við óþarfa ofbeldi og dónaskap.

Vefurinn var opnaður við athöfn á barnaspítala hringsins af einu af börnunum sem þar eru. Vonir standa til að efni vefsvæðisins muni aukast mjög á næstunni en erlendir og innlendir aðilar sem leitað hefur verið til varðandi efnisöflun á vefinn hafa tekið erindinu einstaklega vel.

Vefinn er að finna á slóðinni www.skemmtivefur.is.

Notendur vefsvæðisins geta sent inn efni með því að skrá upplýsingar um það in skráningarglugganum hér við hliðina sem merktur er "Aðsent efni". Allt efni er yfirfarið af ritstjórum áður en það er birt á vefnum.

Ábyrgðarmaður vefsvæðisins er:

Jón Kristinn Snæhólm, Umhyggja
Háleitisbraut 11-13
108 Reykjavík
Sími: 552 4242
Netfang: umhyggja@umhyggja.








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica