Fréttir
Íbúar á Seltjarnarnesi eignast nýtt vefsvæði
Nýverið opnaði nýtt vefsvæði Seltjarnarnesbæjar. Umtalsverðar breytingar voru gerðar á efni, uppsetningu og útliti vefsvæðisins frá því sem var.
"Seltjarnarnesbær valdi Eplica vefkerfi eftir vandlega skoðun á þeim kerfum sem í boði eru og er óhætt að segja að það hafi fyllilega staðið undir væntingum. Kerfið er einfalt og sveigjanlegt og samstarf við Hugsmiðjuna hefur verið ánægjulegt."
Óskar J. Sandholt
Verkefnastjóri Seltjarnarnesbæjar
Við hjá Hugsmiðjunni teljum nýja vefinn sérlega vel heppnaðan og óskum Seltirningum til hamingu með hann um leið og við þökkum statrfsmönnum bæjarins fyrir samstarfið við gerð þess.

