Fréttir

Boðeind opnar vef og vefverslun

30.10.2004

Nýverið opnaði Tölvuverslunin Boðeind nýjan vef og verslun þar sem viðskiptavinir geta fengið ítarlegar vöruupplýsingar og þjónustu. Mikið var lagt upp úr vöruskráningu og er útkoman í samræmi við það.

"Markmið og tilgangur:
Fyrr á þessu ári fjárfesti Boðeind ehf í vefumsjónarkerfinu Eplica frá Hugsmiðjunni. Markmiðið var að bæta þjónustu við starfsfólk og viðskiptavini Boðeindar á vefnum þannig að auðvelt væri að fá upplýsingar um vöru og þjónustu Boðeindar ehf.

Hvernig hefur tekist til:
Í raun má segja að bodeind.is byggi á góðum grunni með Eplica sem vefumsjónarkerfi þar sem allt viðhald og viðmót er mjög einfalt og skilvirkt. En þetta segir þó ekki allt um Eplica þar sem lausnin gerir mun meira en að vera vefumsjónarkerfi. Frekar mætti kalla Eplica vefumsjónar- og upplýsingakerfi þar sem okkur hefur tekist að sameina á einum stað með notkun Eplica:
  • Vefverslun
  • Kynning á vörum
  • Fréttir á vef
  • eBlast fréttarbréf bodeind.is
  • Spurt og svarað
  • Póstlistameðhöndlun
  • Verðlistar eru prentaðir beint af vefnum
  • Verðmerkingar í verslun
  • Kynning á birgjum"

Bjarni Sigurðsson,
Eigandi og framkvæmdastjóri Boðeindar










litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica