Fréttir

Námsgagnastofnun opnar nýtt vefsvæði

29.11.2004

Úm er að ræða endurgerð á eldra vefsvæði stofnunarinnar og uppfærslu á útliti. Á vefnum er að finna upplýsingar um námsefni, veflægt námsefni og tenglasafn sem vísar á námsgagnatengt vefni áöðrum vefsvæðum.

Þá hefur nýr liður á vefnum, Í dagsins önn, einnig litið dagsins ljós en það er viðleitni Námsgagnastofnunar til að koma til móts við þarfir grunnskólanna um efni sem fjallar um það sem efst er á baugi hverju sinni.

Grunnskólakennarar eru sá hópur sem notar síðuna mest en einnig eru foreldrar og grunnskólabörn hvött til að nýti sér allt það efni sem við vefurinn hefur upp á að bjóða. Því hefur verið gert meira úr Krakkasíðum og Unglingasíðum sem er mestmegnis í formi leikja sem bæði eru skemmtilegir og lærdómsríkir.

Einnig hefur fyrirkomulagi við pantanir verið hagrætt með því að nota Eplica Commerce vefverslunarlausn.

"Námsgagnstofnun valdi Eplica vefumsjónarkerfið vegna þess hversu
sveigjanlegt það er. Kerfið er auðvelt í notkun og gefur mikla möguleika á að laga vefinn að hugsanlegum breytingum í framtíðinni. Samskipti við
starfsmenn Hugsmiðjunnar hafa verið einkar ánægjuleg."

Hildigunnur Halldórsdóttir
Tölvunarfræðingur, Námsgagnastofnun










litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica