Fréttir

Stúdentamiðlun verður að veruleika

2.2.2005

Í dag var nýr og glæsilegur þjónustuvefur Stúdentamiðlunar, studentamidlun.is, opnaður með viðhöfn í stúdentaheimilinu við Hringbraut. Stúdentamiðlun er alhliða þjónustuvefur fyrir stúdenta og er ætlað að sinna námsmönnum sem eru í leit að atvinnu, húsnæði, barnagæslu eða kennslu og þeim sem vilja bjóða fyrirtækjum lokaverkefni sín til sölu.

Nýr vefur StúdentamiðlunarStudentamidlun.is er í raun nokkurs konar vefverslun. Kaupendurnir eru fyrirtæki og einstaklingar. Fyrirtæki geta t.d. keypt sér aðgang að vefnum í tiltekinn tíma og leitað að starfsfólki úr röðum stúdenta algerlega án milligöngu starfsmanna stúdentamiðlunarinnar.

Atvinnumiðlunin er fyrir íslenska námsmenn og markmið hennar er annars vegar að auðvelda námsmönnum leit að starfi, einkum sumar-, hluta- eða tímabundnu og hins vegar að auðvelda atvinnurekendum að finna fólk í umrædd störf.

Húsnæðismiðlun er ætlað það hlutverk að miðla húsnæði til námsmanna við Háskóla Íslands. Húsnæðiseigendur geta skráð eignir sínar til leigu gegn gjaldi, hvort sem um er að ræða herbergi eða íbúðir.

Kennslumiðlunin er fyrir stúdenta sem vilja koma sér á framfæri sem leiðbeinendur í hinum ýmsu fögum. Nemendur á öllum námsstigum sem vantar námsaðstoð vita oft ekki hvert þeir geta snúið sér í leit sinni.

Lokaverkefnamiðlun er ætlað það hlutverk að auðvelda námsmönnum að koma lokaverkefnum sínum á framfæri til fyrirtækja. Námsmenn geta skráð lokaverkefni sín til sölu og fyrirtæki geta leitað í skráningunni að áhugaverðum verkefnum. Verðlagning verður alfarið í höndum nemendanna sjálfra.

Barnagæslumiðlunin er til að auðvelda námsmönnum leit að barnagæslu. Annars vegar geta námsmenn auglýst eftir aðlila til að gæta barna sinna og hins vegar geta þeir sem óska þess að gæta barna auglýst þjónustu sína. Barnagæslumiðlunin er ókeypis fyrir báða aðila. Stúdentar og barnapíur geta skráð auglýsingu á vefinn og skoðað auglýsingar sem þegar eru á vefnum.

Vefurinn er hannaður og unninn af Hugsmiðjunni í góðri samvinnu við starfsmenn Stúdentamiðlunar og nýtir sér Eplica vefumsjónarkerfið frá Hugsmiðjunni.










litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica