Nýtt vefsvæði félags CP á Íslandi
Fyrir nokkru var opnað nýtt vefsvæði fyrir félag CP á Íslandi. Á vefsvæðinu er ætlunin að veita haldgóðar og nákvæmar upplýsingar um CP.
Nýja vefsvæðið má finna á slóðinni: www.cp.is. Foreldrar sem og fagaðilar geta sótt fræðslu og þekkingu um margvísleg atriði er lúta að fötluninni.
Það er von aðstandenda að viðkomandi aðilar verði öflugir að nýta sér vefinn og miðla þekkingu sinni og reynslu í gegnum hann.
Hvað er CP?
CP stendur fyrir Cerebral Palsy, sem hefur verið þýtt heilalömun á íslensku.
Markmið félags CP á Íslandi eru að:
- Standa fyrir fræðslu og kynningu á CP.
- Safna upplýsingum um CP og miðla þeim.
- Stuðla að faglegri umfjöllun um málefni er viðkoma CP.
- Efla tengsl fatlaðra, aðstandenda, fagaðila og annarra áhugasamra um CP.
- Stuðla að því að félagsmenn veiti hver öðrum aðstoð og stuðning eftir því sem við á.
- Standa í hvívetna vörð um hagsmuni einstaklinga með CP.
Við hjá Hugsmiðjunni óskum félagi CP á Íslandi til hamingju með glæsilegt vefsvæði og vonum að Eplica vefumsjónarkerfið geti auðveldað upplýsingastreymi til og frá félaginu í framtíðinni.
Starfsfólk Hugsmiðjunnar.

