Fréttir

Rafrænar umsóknir og yfirlýsingar á vef Geislavarna

21.2.2005

Á vefsetri Geislavarna er hægt að nota rafræn eyðublöð til þess að sækja um leyfi til notkunar á röntgenbúnaði, leyfi til innflutnings, notkunar á geislavirkum efnum og umsóknir um vottorð (yfirlýsingar) vegna geislavirkni í sjávarafurðum. Einnig eru þar eyðublöð vegna ýmissa tilkynninga sem lögboðnar eru.

Geislavarnir.isStefnt er að því viðskiptavinir Geislavarna geti innan skamms sótt öll eyðublöð á vefsetur stofnunarinnar, ásamt því að geta fyllt þau þar út og sent rafrænt.

Einnig hefur verið tekið í notkun svæði fyrir þá viðskiptavini sem þurfa að sækja um vottorð (yfirlýsingar) vegna geislavirkni í sjávarafurðum. Fleiri eyðublöð eru væntanleg og verða vonandi öll fáanleg fyrir vorið.

Hugsmiðjan sá um forritun og uppsetningu á rafrænu eyðublöðunum og vottorðunum í góðri samvinnu við starfsmenn Geislavarna ríkisins.










litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica