Ferðalagið byrjar á www.dohop.com
Fyrir nokkru hönnuðum við nýtt útlit og vefuðum samkvæmt vinnubrögðum Hugsmiðjunnar um aðgengi fyrir alla fyrir vefsvæðið dohop.com.
Hvað er dohop?
dohop.com hjálpar þér að finna hentug flug með lággjaldaflugfélögum og að setja upp góðar ferðaáætlanir. Það er einfalt að leita að lágfargjaldaflugum með dohop, þú gefur einfaldlega upp áfangastaði og dagsetningar og dohop finnur bestu leiðir á milli þeirra. Ef það finnast engin bein flug milli valinna áfangastaða reynir dohop að setja saman áætlanir úr fleiri flugum. Þegar þú hefur fundið flug sem gengur upp færir þú það yfir í þína áætlun. Þar getur þú séð nánari upplýsingar um flugið. Þegar ferðaáætlunin þín er tilbúin er nóg að smella á viðkomandi flug og við skilum þér á réttan stað á vefsíðu viðkomandi flugfélags, þar sem þú getur lokið við að bóka flugmiðann.
Hvað er aðgengi fyrir alla?
Hönnun þjáls notendaviðmóts og skipulagning vefsvæða er mikilvægur hluti þess ferlis að gera vefsíður aðgengilegar öllum notendum og tryggja skilvirka og eðlilega nýtingu. Viðmóts- og aðgengishönnun þarf ávallt að haldast í hendur þegar vefsvæði eru hönnuð, þó skýr munur sé á þessu tvennu.
Í greininni „Aðgengi fyrir alla“ er fjallað ítarlega um aðgengismál og það sem við og eplica kerfið gerum til að þau séu 100%.
Viðmótshönnun beinist að því að gera virkni og notkun vefsvæðisins einfalda, auðskilda og skilvirka fyrir alla almenna notendur vefsins, með ríka áherslu á þarfir og markmið fyrirfram skilgreindra markhópa viðkomandi vefsvæðis.

