Fréttir

Húsdýragarðurinn með nýtt vefsvæði

15.4.2005

Þann 7. mars sl. var nýju vefsvæði Fjölskyldu- og húsdýragarðsins skotið í loftið. Hlutverk vefsvæðisins er annars vegar að veita almennar upplýsingar um garðinn og hins vegar að kynna ítarlega þá þjónustuflokka sem boðið er upp á.
Á vefsvæðinu er sérstaklega fjallað um húsdýrin, villtu dýrin, leiktækin, vísindaveröldina, sjávardýrasafnið og veitingasöluna.
Skoða má nýja vefsvæðið á slóðinni: www.husdyragardur.is.

Um Húsdýragarðinn

Laugardalurinn er dýrmætt svæði í augum borgarbúa. Þar hefur á undanförnum áratugum verið byggð upp margvísleg aðstaða fyrir fólk að verja tíma sínum til íþróttaiðkunar, leikja, útivistar og fræðslu. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn setur svip sinn á dalinn og hefur notið síaukinna vinsælda borgarbúa og gesta.

Þakkir fyrir nýja vefinn

„Mikið og gott starf var unnið í Hugsmiðjunni ehf. til að koma nýja útlitinu á vefnum upp. Kerfið sem unnið er með heitir eplica og er einstaklega notendavænt og einfalt í uppsetningu. Skoða má allt um kerfið á heimasíðu Hugsmiðjunnar ehf. www.eplica.is.

Starfsfólk Fjölskyldu- og húsdýragarðsins vill þakka starfsfólki Hugsmiðjunnar fyrir frábært viðmót á undirbúningstímanum. Eplica kerfið hefur allt sem þarf fyrir netumhverfi garðsins og meira til. Kerfið fellur vel að þeirri hugmynd starfsfólks að vefurinn eigi að vera auðveldur í notkun fyrir alla, auk þess að vera aðgengilegur fyrir þá sem koma að uppfærslum og viðhaldi hans.“

Kærar þakkir.

Sæunn Hrönn Jóhannesdóttir 

Fræðsludeild Fjölskyldu- og húsdýragarðsins










litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica