Fræðslusetur iðnaðarins í samstarf
Um er að ræða aðgengilega hönnun á nýju sameiginlegu útliti fyrir vefsetrin www.frasi.is, www.pts.is, www.metal.is, www.mfb.is og og uppsetningu þeirra í Eplica vefumsjónarkerfinu.
Vefsvæðið verður unnið í samræmi við verklag sem Hugsmiðjan hefur tamið sér og beitt undanfarin ár. Þetta verklag tryggir aðgengi þeirra sem sökum fötlunar nota aðra vafra en flestir notendur. Þetta verklag getur einnig aukið sýnileika á leitarvélum og aukið aðgengi að vefsvæðunum fyrir þá sem nota gamla vafra. Nánari upplýsingar um þetta verklag má finna í greininni „Aðgengi fyrir alla“ en í henni er fjallað ítarlega um aðgengismál og það sem við og eplica kerfið gerum til að þau séu 100%.
Það var Ingi Rafn Ólafsson sem skrifaði undir samninginn fyrir hönd Fræðslusetra iðnaðarins og Haraldur Gunnlaugsson verkefnastjóri fyrir hönd Hugsmiðjunnar.

