Dreymir þig golf?
Um helgina opnaði einstakur golfkennsluvefur sem miðar að því að veita notendum markvissa og árangursríka þjálfun á öllum sviðum golfíþróttarinnar.
Með því að gerast notandi að Draumagolfi er gefinn aðgangur að notendavef um leið og hann opnar þann 15. maí og þá er strax hægt að fara að æfa markvisst, einn eða með golffélögunum. Aðgangur að notendavef er í formi æfingaáætlanna ásamt góðum og gagnlegum æfingum á myndum og myndböndum sem veita leiðsögn um meðal annars tækni, æfingar og reglur. Sérfræðingar vefjarins eru tilbúnir að svara notendum um aðstæður og spurningar sem upp koma og hægt er að skrá fyrstu golfhringi sumarsins í tölfræðihlutann á einkasvæði notenda.
Hugsjón Draumagolfs er að gefa kylfingum, hvort sem að þeir hafa spilað í mörg ár eða eru að taka sín fyrstu högg í golfinu, tækifæri á að ná enn betri árangri í íþróttinni. Draumagolf vill mæta þörfum hvers og eins notanda, hvar sem hann er staddur í golfinu og finna þær leiðir sem henta honum best.
Það var Hugsmiðjan sem sá um uppsetningu á vefsvæðinu sem byggir á Eplica vefumsjónarkerfinu ásamt Spuna hugbúnaðarhúsi sem sá um hönnun útlits vefjarins. Christian Fahlén sá um útfærslu á tölfræðihlutanum.
Hugsmiðjan óskar Draumagolfsfólki þeim Jóni Karlssyni PGA golfkennara og Kristínu Einarsdóttur og öðrum aðstandendum vefsvæðisins til hamingju með afraksturinn.

