Fréttir

Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

20.5.2005

Í vikunni var skrifað undir samning milli Hugsmiðjunnar og Félagsmálaráðuneytisins um smíði og uppsetningu samskiptalausna sem auka eiga samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila.

Markmið verkefnisins er að...

„Kanna hvernig og á hvaða sviðum auka megi samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila (2004-2005). Gerðar verði m.a. tilraunir með uppsetningu umræðutorga þar sem fram fari skoðanaskipti um afmörkuð málefni. Slík umræðutorg falla vel að hugmyndum um íbúalýðræði og aukna þátttöku almennings í að móta sitt nánasta umhverfi. Sveitarfélög, ráðuneyti og ríkisstofnanir verði hvött til að koma upp slíkum umræðutorgum."

Stefán Baxter framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar segir það mjög spennandi fyrir fyrirtækið að fá taka þátt í verkefninu. „Við gerð verkefnisins notum ný og athygliseverða tækni, það og markmið verkefnisins gera það sérlega áhugavert.“

Gerðar verði m.a. tilraunir með uppsetningu umræðutorga og veflægs rauntímaspjalls þar sem fram fari skoðanaskipti um afmörkuð málefni. Slík umræðutorg falla vel að hugmyndum um íbúalýðræði og aukna þátttöku almennings í að móta sitt nánasta umhverfi. Sveitarfélög, ráðuneyti og ríkisstofnanir verði hvött til að koma upp slíkum umræðutorgum.“

Verkefnin eru öll til þess fallin að einfalda aðgengi að ráðuneytinu og auka umræðu um þá málaflokka sem ráðuneytið ber ábyrgð á. Verkefnin eru hugsuð sem tilraunir og því er lagt mikið upp úr því að prófa mismunandi útfærsluleiðir.

Verkefnin eru byggð á reynslu annarra af umræðutorgum og spjallrásum, en lagt er upp með að prófa lausnirnar við íslenskar aðstæður og reyna að meta framtíðarmöguleika fyrir opinbera aðila. Auk þess verður unnin greining á vegum ráðuneytisins á kostum og göllum hvers verkefnis fyrir sig.










litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica