Fréttir

KSÍ með nýtt og endurbætt vefsvæði

25.5.2005

Í dag opnaði nýtt og glæsilegt upplýsingavefsvæði KSÍ á slóðinni www.ksi.is. Eldra vefsvæðið hefur, frá því það var opnað í maí árið 2000, gegnt veigamiklu hlutverki í upplýsingaflæði til aðildarfélaga sambandsins, fjölmiðla og annarra sem láta sig knattspyrnumálin varða.

Gamla vefsvæðið var í raun sprungið og var orðið tímabært að endurnýja skipulag, virkni og vefumsjónarkerfi. Helstu breytingar eru að nýtt útlit hefur verið ofið og með Eplica vefumsjónarkerfinu er flokkun frétta og greina orðin skiplagðari og aðgengi að upplýsingum um mót, úrslit og næstu leiki er markvissara.

Einnig er verið að nýta gamlar ASP (Active Server Pages) lausnir af gamla vefsvæði KSÍ og nota þær á því nýja nánast óbreyttar. Til þess að gera þetta mögulegt er verið að nota virkni í Eplicu sem gerir kerfinu kleyft að tala við aðrar veflausnir óháð forritunarmáli eða rekstrarumhverfi.

Uppsetning á vefsvæðinu í Eplica kerfinu er samvinnuverkefni á milli Hugsmiðjunnar og Skýrr, en vefsvæði KSÍ er það fyrsta af nokkrum samvinnuverkefnum sem opnað er í kerfinu.








litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica