Fréttir

Lax-á endurnýjar vefsvæði sitt

2.6.2005

Nýtt og endurbætt vefsvæði Stangveiðifélagsins Lax-á var opnað 17. maí sl. í Eplica vefumjónarkerfinu.

Lax-á hefur í gegnum árin boðið viðskiptavinum sínum upp á margvíslega þjónustu og leggur félagið jafnfram mikla áherslu á að viðskiptavinir fái sem ítarlegastar upplýsingar um þjónustu þess á nýja vefsvæðinu.

Fréttir og greinar skipa stóran sess á nýja vefsvæðinu en skrif í fréttakerfi Eplica er afar einföld aðgerð og viðmót er aðgengilegt. Notendur vinna á vefsíðunni sjálfri í umhverfi sem þeir gjörþekkja. Reynslan hefur sýnt að fólk er mjög fljótt að komast upp á lag með að skrifa og breyta fréttum, tengja við þær myndir og að tengja greinarnar þannig að sama grein geti birtst á fleiri en einum stað.

Afar einfalt er að flytja eldri vefi yfir í Eplica kerfið og þar sem vefsvæði Eplica eru á engan hátt bundin af útliti nýtist Eplica því bæði þeim fyrirtækjum sem vilja koma sínu núverandi vefsvæði á einfaldan hátt í öflugt vefviðhaldskerfi eða láta útbúa fyrir sig nýtt útlit sem samræmist ímynd þeirra. Og þar sem Eplica getur staðið eitt og sér eða tengst öðrum kerfum fyrirtækisins, þá er það framtíðarlausn í sérflokki.

Það var Heimir Örn Óskarsson sem sá um útlitshönnun en Hugsmiðjan í samvinnu við starfsmenn Lax-á sá um aðra uppsetningu vefsvæðisins.










litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica