Fréttir

Hvammsvík með nýtt vefsvæði

2.6.2005

Þann 25. apríl opnuðum við nýtt upplýsingavefsvæði í Eplica vefumsjónarkerfinu fyrir Hvammsvík en þar má finna greinargóðar upplýsingar um starfsemina ásamt vefverslun fyrir kajaksportið.

Einföld og þægileg efnisumsýsla er lykilatriði þegar á að halda úti góðum vef fyrir allar stærðir fyrirtækja Allir notendur verða að vera sjálfbjarga í verkefnum sínum. Eplica kerfið er byggt með það fyrir augum að notendur geti leyst af hendi sem flest verkefni án utanaðkomandi hjálpar.

Hvammsvík er útivistarsvæði og þar er nú rekin blómleg ferðaþjónusta. Þar er m.a. í boði silungsveiði, golfvöllur, kajakferðir, sjóstangveiði, svartfuglsveiði, skemmtisiglingar, hestar, grillveislur o.fl. Tilvalið fyrir fjölskyldudag starfsmannafélagsins eða ættarmótið, sem og einstaklinginn með veiðistöngina eða fjölskyldur vopnaðar golfkylfum, gönguskóm og nestiskörfum.

Hvammsvík ehf stundar blómlegan innflutning á vörum fyrir kajaksportið, bæði plast og trefjaplastbátum ásamt öllum mögulegum fylgihlutum. Um er að ræða vörumerki sem þekkt eru fyrir gæði s.s Palm, Lendal, Valley Kayaks,QajaQ, Hasle, Kirton, Rainbow, ShockWave o.fl. Þær vörur sem Hvammsvík flytur inn fást allar á staðnum, og hægt er að prufa báta. Notaður búnaður er einnig seldur í Hvammsvík.

Það var Sverrir Hreiðarsson (Jolli) sem sá um útlitshönnun en uppsetning var í höndum Hugsmiðjunnar.










litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica