Fréttir

Sýslumannafélag Íslands fær vef

3.6.2005

Um miðjan janúar var opnaður nýr upplýsingavefur þar sem veittar eru upplýsingar um verkefni sýslumanna og umdæmi og ýmsar leiðbeiningar fyrir þá sem þurfa að leita til embættanna. Slóðin á nýja vefinn er: www.syslumenn.is

Verkefni allra sýslumanna sem snerta hinn almenna borgarann eru með annars:

  • Löggæslan
  • Sifjamál
  • Dánarbú
  • Lögráðarmál
  • Fullnustugerðir
  • Þinglýsingar

Í Sýslumannafélagi Íslands eru allir sýslumenn á landinu 26 talsins en auk þess eru ríkissaksóknari, ríkislögreglustjórinn, vararíkislögreglustjóri, lögreglustjórinn í Reykjavík, varalögreglustjórinn í Reykjavík, saksóknarar, forstjóri Útlendingastofu og tollstjórinn í Reykjavík félagsmenn. Einnig eiga þeir aðild að félaginu sem voru meðlimir þess er þeir létu að störfum fyrir aldurssakir. Samkvæmt félagatali 2004 eru 48 manns í Sýslumannfélagi Íslands.

Það var Hugsmiðjan sem sá um uppsetningu á vefsvæðinu en veffyrirtækið Origo sá um útlitshönnun.










litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica