Við erum að leita að hæfileikaríku starfsfólki
Sérfræðingur í vefforritun
Helstu verkefni
- Smíði og innleiðing sérlausna
- Þróun á Eplica
- Samþætting við ýmis upplýsingakerfi
Hæfniskröfur og reynsla
- Víðtæk Java og J2EE þekking æskileg
- Mikil og margbreytileg reynsla af vefforitun
- Góð þekking á gagnagrunnum
- Mjög góð almenn tölvukunnátta
Viðskiptaumsjón og ráðgjöf
Helstu verkefni
- Samskipti við viðskiptavini
- Verkumsjón
- Ráðgjöf á sviði vefmála
- Gæðaeftirlit
Hæfniskröfur og reynsla
- Góð almenn menntun
- Reynsla af viðskiptaumsjón og sölumensku
- Reynsla af uppsetningu og rekstri vefsvæða
- Mjög góð almenn tölvukunnátta
Almenn þjónusta
Helstu verkefni
- Notendaþjónusta
- Kennsla
- Uppsetning vefsvæða
- Yfirferð og úttektir á vefsvæðum
Hæfniskröfur og reynsla
- Góð almenn menntun
- Rík þjónustulund
- Mjög góð almenn tölvukunnátta
- Reynsla af uppsetningu og rekstri vefsvæða
Við leitum að einstaklingum sem eru metnaðarfullir, samsviskusamir og góðir í mannlegum samskiptum, þeir þurfa að sýna frumkvæði og geta unnið sjálfstætt og í hóp. Við metum reynslu ekki síður en menntun ef hún fer saman við öguð og ábyrg vinnubrögð, áræðni og úrræðasemi.
Umsóknir sendist ásamt starfsferilsskrá á atvinna@eplica.is fyrir 1. júlí næstkomandi. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Fullum trúnaði er heitið.
Hugsmiðjan er eitt fremsta hugbúnaðarhús landsins á sviði veflausna. Síðastliðin 4 ár hefur fyrirtækið þróað og selt vefumsjónarkerfið Eplica við góðan orðstír. Meðal viðskiptavina fyrirtækisins eru mörg af stærri fyrirtækjum landsins, ríkið, sveitarfélög, félagasamtök og stofnanir.

