112 og Vaktstöð siglinga opna vef
Starfsmenn Neyðarlínunnar bera mikla ábyrgð sem tengiliðir almennings við neyðarsveitir landsins, heimasíðunni er ætlað að gefa innlit í störf þeirra.
Það var Hugsmiðjan sem sá um ráðgjöf og uppsetningu á vefsvæðinu í samráði við starfsmenn Neyðarlínunnar 112 sem sáu um efnisvinnslu.
Um Neyðarlínuna 112
Neyðarlínan hf. var stofnuð í október 1995 og hóf neyðarsímsvörun í 112 1. janúar 1996. Rekstur neyðarnúmersins 112 og tengdrar þjónustu eru enn megin viðfangsefni fyrirtækisins. Auk þess hefur Neyðarlínan annast rekstur stjórnstöðvar Securitas frá sama tíma.Um Vaktstöð siglinga
Samkvæmt þjónustusamningi við Siglingastofnun Íslands sem undirritaður var 1. júní 2004 tók Neyðarlínan að sér rekstur Vakstöðvar Siglinga sem áður var tilkynningarskyldan og fjarskiptastöðin í Gufunesi. Þar með er öll öryggisþjónusta við sjófarendur veitt á einum stað.
Um Hugsmiðjuna
Hugsmiðjan ehf. er fyrirtækið á bak við Eplica. Það sérhæfir sig í hvers konar hugbúnaðargerð og hefur síðan í jánúar 2001 smíðað hugbúnaðarkerfi sem nú eru markaðssett undir Eplica nafninu. Markmið fyrirtækisins er að veita viðskiptavinum sínum bestu fáanlegu lausnir, aðstoða þau við hagræða í rekstri, bæta upplýsingaflæði til viðskiptavina og starfsmanna og hækka þjónustustig án aukins tilkostnaðar.

