Félagsstofnun stúdenta opnar nýjan vef
Nýverið opnaði Félagasstofnun stúdenta (FS) nýtt upplýsingavefsvæði á slóðinni www.fs.is. FS rekur margháttaða þjónustu fyrir stúdenta og beitir sér eftir þörfum fyrir því að ný fyrirtæki í þágu stúdenta séu stofnuð.
Það var Hugsmiðjan sem sá um uppsetningu og hönnun vefsvæðis í Eplica vefumsjónarkerfinu ásamt starfsmönnum FS.
Um félagsstofnun stúdenta
Félagsstofnun stúdenta er fyrst og fremst þjónustufyrirtæki fyrir stúdenta við Háskóla Íslands. Aðalmarkmið FS er að bjóða stúdentum við HÍ góða þjónustu á góðum kjörum og tryggja öruggan rekstrargrundvöll stofnunarinnar. Félagsstofnun stúdenta var stofnuð með lögum nr. 33, 1968 og tók formlega til starfa 1. júní sama ár. Aðild að stofnuninni eiga allir skrásettir stúdentar við Háskóla Íslands, Háskólinn og menntamálaráðuneytið. Starfsmenn eru um 100 talsins.
Nú árið 2005, rekur FS: Bóksölu stúdenta, Kaffistofur stúdenta, Leikskóla stúdenta, Stúdentagarða og Stúdentamiðlun.
Um Hugsmiðjuna
Hugsmiðjan ehf. er fyrirtækið á bak við Eplica vefumsjónarkerfið. Það sérhæfir sig í hvers konar hugbúnaðargerð og hefur síðan í jánúar 2001 smíðað hugbúnaðarkerfi sem nú eru markaðssett undir Eplica nafninu. Markmið fyrirtækisins er að veita viðskiptavinum sínum bestu fáanlegu lausnir, aðstoða þau við hagræða í rekstri, bæta upplýsingaflæði til viðskiptavina og starfsmanna og hækka þjónustustig án aukins tilkostnaðar.

