Fréttir

UT-vefurinn - upplýsingatækni á vegum hins opinbera

Nýr vefur í Eplica-kerfi Hugsmiðjunnar

23.1.2006

Mikilvægt er að þeir sem stýra og vinna við upplýsingatækni í opinberum stofnunum fái hafi greiðan aðgang að öllu efni er varðar upplýsingatækni á vegum hins opinbera sé og að þeir geti gengið að upplýsingum er varða dagleg störf, fyrirmyndir og einstök málefni sem efst eru á baugi hverju sinni. Einnig er æskilegt að starfsmenn hafi aðgang að vettvangi þar sem þeir geta leitað ráða og spurst fyrir um tiltekin álitamál.

Til þess að koma til móts við þessar þarfir hefur vefnum www.utvefur.is verið komið á laggirnar. Telja má víst að UT-vefurinn nýtist ýmsum öðrum en ríkisstofnunum svo sem sveitarfélögum, fyrirtækjum og almenningi í landinu. Vefurinn er unninn af Hugsmiðjunni og keyrir í Eplica-kerfinu.

Markmið með UT-vefnum:

  • Greiða fyrir þróun rafrænnar stjórnsýslu
  • Auðvelda aðgengi að upplýsingum um upplýsingatækni
  • Vera vettvangur og bakland sértækra málefna sem efst eru á baugi hverju sinni, sbr. utdagur, rafræn viðskipti, öryggismál, opinn hugbúnað, aðgengismál o.s.frv.
  • Miðla og safna upplýsingum um upplýsingatækni, t.d. varðandi rekstur, fyrirmyndir og hugmyndir
  • Vera hugmyndabanki og vettvangur umræðna um upplýsingatækni
  • Veita fræðslu um ýmislegt sem varðar upplýsingasamfélagið almennt, t.d. stefnu ríkistjórnarinnar, lög og reglugerðir, tölfræði, verkefni sem eru í vinnslu o.s.frv
  • Vera vettvangur þar sem hagsmunaaðilar og félagasamtök geta komið á framfæri upplýsingum

Markhópur UT-vefsins:

  • Þeir sem vinna með upplýsingatækni í opinberum stofnunum (ríki og sveitarfélög), almennir stjórnendur, fagmenn og þeir sem stýra upplýsingatæknimálum
  • Sérstakur markhópur eru stjórnendur og starfsmenn lítilla stofnana.
  • Almenningur og aðrir sem nýta sér upplýsingatækni.

UT-vefurinn er í umsjá forsætisráðuneytisins og á ábyrgð þess.










litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica