Endurnýjun á vef Strætó
Vefurinn er með vottun 2 frá Sjá og ÖBÍ
Á dögunum fór í loftið ný útgáfa af vef Strætó bs, www.bus.is. Vefurinn hefur lengi keyrt í Eplica-kerfinu og engin breyting varð á því. Hins vegar fór fram mikil endurnýjun á vefnum.
Hugsmiðjan sá um að hanna nýtt útlit á vefinn og, eins og alltaf þegar við hönnum vefi, var tekið sérstakt mið af aðgengismálum. Nýi vefurinn og ráðgjafinn er aðgengilegur fyrir fatlaða sem fyrr en vefurinn hefur verið vottaður af Öryrkjabandalagi Íslands og Sjá ehf. með tilliti til fatlaðra notenda.
Ráðgjafinn er mikilsverður þáttur á vef Strætó, en í honum getur notandinn fengið ráðleggingar um hvaða strætisvagna er best að taka og hvenær til að komast á milli staða. Hann er unninn í samvinnu við verkfræðistofuna Hnit. Aðgengi var stórbætt að Ráðgjafanum. Sem dæmi má nefna að nú má leita að brottfarar- og áfangastöðum eftir þremur leiðum: Með því að skrifa heiti staða í leitarglugga; með því að velja staði úr fellilistum; með því að velja staði á kortum. Niðurstöður leitar hafa verið einfaldaðar og eru mun skýrari en áður.
Hugsmiðjan hefur átt gott samstarf við Strætó við endurbætur á vefnum, við Hnit verkfræðistofu sem sér um baklægt kerfi Ráðgjafans og kort og við Sjá viðmótsprófanir sem veitti Strætó ráðgjöf við verkið og vottaði hann.
