Fréttir

Aðgengi allra að vefnum

Áhugaverð skýrsla um stefnu stjórnvalda í aðgengismálum

31.1.2006

Forsætisráðherra lagði fram í ríkisstjórn, þann 13. janúar sl., skýrslu um aðgengi allra að vefnum. Skýrsluhöfundar eru Arnar Pálsson, félagsmálaráðuneyti, og Sigurður Davíðsson, forsætisráðuneyti. Í skýrslunni eru lagðar fram tillögur um aðgerðir sem stuðla að því að fatlaðir og aðrir hópar sem gefa þarf sérstakan gaum í upplýsingasamfélaginu geti nýtt sér þjónustu á Netinu.

Ákveðið hefur verið að fara að þeim tillögum sem lagðar eru fram í skýrslunni og stefna að því að allir opinberir vefir á Íslandi uppfylli ákveðnar lágmarkskröfur í aðgengismálum.

Í skýrslunni er fjallað um aðgengismál í alþjóðlegu samhengi, greint frá stöðu mála á Íslandi og aðgengisvottun íslenskra vefja. Fjallað er um opinbera vefi og lagaumhverfi og settar fram tillögur um hvernig opinberir vefir geti orðið aðgengilegir öllum.

Skýrslan er mjög greinargott innlegg í umræðu um aðgengismál almennnt, þótt hún fjalli fyrst og fremst um opinbera vefi, og markar stefnuna að mörgu leyti fyrir þá sem starfa að vefmálum.

Skýrsluna er að finna á UT-vefnum en hann er einmitt unninn af Hugsmiðjunni.

Aðgengi allra að vefnum.










litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica