Fréttir
Orkuátak Latabæjar
Splunkunýr vefur í Eplica kerfinu
Í dag hefst orkuátak Latabæjar sem á að hvetja börn (og fullorðna) að lifa heilbrigðu lífi. Hluti af átakinu er nýr vefur, www.orkuatak.is, en hann er unninn af Hugsmiðjunni.
Vefurinn er hannaður af hönnuðum Latabæjar, undir stjórn Gunnars Júlíussonar. Að öllu öðru leyti er vefurinn unninn hjá Hugsmiðjunni. Það er líklegt að í febrúarmánuði, meðan orkuátakið stendur yfir, verði www.orkuatak.is einn af vinsælli vefjum landsins.

