Fréttir

Nýr Meistari

Árangursríkur miðill um meistara og fagmenn sem nær til allra landsmanna

20.3.2006

Nýlega opnaði Hugsmiðjan nýja útgáfu af upplýsingavefnum Meistarinn.is. Vefurinn veitir almenningi, fyrirtækjum og stofnunum upplýsingar um fyrirtæki, meistara og fagmenn innan Samtaka iðnaðarins á einfaldan og aðgengilegan hátt. Vefurinn byggir á Eplica-vefumsjónarkerfinu.

Rúmlega 1.000 fyrirtæki, sjálfstæðir atvinnurekendur og fagfélög úr fjölbreyttri flóru iðnaðar og löggiltra iðngreina er skráðir þátttakendur í vefnum. Frá upphafi hefur góð aðsókn verið á vefinn en rúm sextán hundruð manns heimsækja hann að jafnaði á mánuði, mest hefur aðsóknin verið 3.667 manns í einum mánuði.

Möguleikarnir á vefnum eru margir. Til dæmis er hægt að leita að fagmönnum eftir landshlutum, starfsgreinum og með textaleit.

www.meistarinn.is










litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica