Útlendingastofnun með nýja heimasíðu
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra var viðstaddur opnun nýrrar heimasíðu Útlendingastofnunar, en Björn er einmitt þekktur fyrir áhuga sinn á því að nýta Netið til hins ýtrasta og er frumkvöðull meðal íslenskra stjórnmálamanna í því að halda úti heimasíðu - en Hugsmiðjan gerði einmitt síðuna sem hann er nú með. Vefur Björns fékk íslensku vefverðlauni 2003 sem besti einstaklingsvefurinn.
Ný heimasíða Útlendingastofnunar var tekin í notkun þann 11. apríl sl. Var helstu samstarfsaðilum Útlendingastofnunar boðið að vera við opnun síðunnar og var móttaka haldin í húsnæði Útlendingastofnunar sama dag klukkan 16:00. Meðal gesta var Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og hélt hann ávarp í tilefni af opnun nýju heimasíðunnar.
Heimasíða stofnunarinnar, www.utl.is, er unnin af Hugsmiðjunni og keyrir í Eplica kerfinu.

