Nýr vefur Lífeyrissjóðs verslunarmanna
Vefur lífeyrissjóðsins, www.live.is, er umfangsmikill upplýsingavefur. Þar eiga sjóðfélagar að geta fundið allar þær upplýsingar sem þeir þeir þurfa, m.a. um lífeyri, séreignarsparnað og lán. Reiknivélar á vefnum eru fólki til aðstoðar við að átta sig á þeim möguleikum sem eru í boði.
Sjóðfélagar geta skráð sig inn á vefinn og nálgast upplýsingar um stöðu sína hjá sjóðnum. Fyrirtæki geta einnig skráð sig inná vefinn og gengið frá skilagreinum og fengið allar upplýsingar er þær varða.

