Fréttir

Vegagerðin opnar nýjan vef

29.5.2006

Þann 24. maí opnaði Vegagerðin nýjan vef í Eplica kerfi Hugsmiðjunnar. Vefurinn er mjög efnismikill og birtir upplýsingar úr ýmsum gagnasöfnun Vegagerðarinnar.

Upphaf þessa verkefnis má rekja til júnímánaðar 2004 en þá var settur á laggirnar stýrihópur sem hafði það markmið að koma með tillögur að nýjum vef fyrir Vegagerðina. Á haustdögum þetta ár gekk Haraldur Gunnlaugsson til liðs við hópinn sem ráðgjafi, en hann var þá verkefnastjóri hjá Hugsmiðjunni.

Stýrihópurinn gerði ítarlega úttekt á þörfum stofnunarinnar og framtíðarsýn í vefmálum og skilaði skýrslu um það í desember 2004. Sú skýrsla var lögð til grundvallar við áframhaldandi vinnu Vegagerðarinnar og Hugsmiðjunnar við vefinn.

Þessi vinna er nú að skila sér í nýjum og glæsilegum vef.

Vefur Vegagerðarinnar.










litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica