Fréttir

Við leitum að þjónustustjóra

11.8.2006

Þjónustudeild Hugsmiðjunnar gegnir veigamiklu hlutverki í starfsemi fyrirtækisins. Við leitum nú að þjónustustjóra til að stýra þjónustudeildinni, en í henni eru nú 4 starfsmenn.

Verksvið þjónustudeildar

Þjónustudeild gegnir veigamiklu hlutverki, sérstaklega í samskiptum við viðskiptavini Hugsmiðjunnar. Helstu verksvið eru:

  • Notendaþjónusta
  • Uppsetning vefsvæða
  • Kennsla
  • Prófanir á vefsvæðum

Hæfni

Þjónustustjóri þarf hafa þekkingu á vefmálum og HTML. Þekking á CSS, gagnagrunnum og Flash er æskileg.

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Hefur menntun sem nýtist í starfinu
  • Hefur reynslu sem nýtist í starfinu
  • Er skipulagður og ákveðinn
  • Hefur mjög góða tölvukunnáttu
  • Vill þróast og þroskast í starfi

Við leitum að metnaðarfullum og samviskusömum einstaklingi. Hann þarf að sýna frumkvæði og geta unnið sjálfstætt sem og í hóp og hafa ríka þjónustulund.

Umsókn

Umsóknir sendist á atvinna@eplica.is fyrir 18. ágúst næstkomandi. Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst. Fullum trúnaði er heitið.

Hér getur þú skoðað auglýsinguna eins og hún birtist í dagblöðum.








litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica