Fréttir
Ný heimasíða Persónuverndar
Fimmtudaginn 14. ágúst var opnuð ný heimasíða Persónuverndar í Eplica vefumsjónarkerfi Hugsmiðjunnar.
Eins og segir í frétt á heimasíðu Persónuverndar var við hönnun útlits leitast við gera vefinn sem aðgengilegasta fyrir almenning og þá sem koma að meðferð persónuupplýsinga. Skýr uppsetning og einfaldur og skýr texti á heimasíðu opinberrar stofnunar þjónar fjölþættum markmiðum. Meðal annars þeim að auðvelda fólki að kynna sér rétt sinn, tryggja hraðvirkari málsmeðferð og aukið gagnsæi í stjórnsýslu stofnunarinnar.
Hugsmiðjan óskar Persónuvernd og viðskiptavinum stofnunarinnar til hamingju með vefinn.
