Fréttir

Félagsmálaráðherra opnar Stillingar.is

16.11.2006

Í dag opnaði Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra vefþjónustuna Stillingar.is við formlega athöfn. Um er að ræða nýja þjónustu sem er hönnuð og rekin af Hugsmiðjunni ætlaða vefstjórum sem vilja koma til móts við vefnotendur sem eiga erfitt um lestur.

Í dag opnaði Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra vefþjónustuna Stillingar.is við formlega athöfn. Um er að ræða nýja þjónustu sem er hönnuð og rekin af Hugsmiðjunni ætlaða vefstjórum sem vilja koma til móts við vefnotendur sem eiga erfitt um lestur.

Í ræðu sinni í dag sagði ráðherra meðal annars:

Í stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið „Auðlindir í allra þágu“ er að finna metnaðarfull markmið um að rafræn þjónusta opinberra aðila skuli taka mið af slíkum sjónarmiðum. Fyrirtæki eru hvött til að gera slíkt hið sama. Ríkisstjórnin hefur jafnframt ákveðið að tillögu forsætis- og félagsmálaráðuneytisins að stefna að því að allir opinberir vefir á Íslandi uppfylli ákveðnar lágmarkskröfur í aðgengismálum fyrir 1. júlí 2007.

Það er með mikilli ánægju sem ég þigg það tækifæri að fá að opna formlega vefþjónustuna www.stillingar.is sem Hugsmiðjan ehf. hefur þróað, meðal annars með styrk frá félagsmálaráðuneytinu, og jafnframt greina frá því að ráðuneytið hefur tekið þessa þjónustu í gagnið á sinni heimasíðu.

Stillingar.is auðvelda sjónskertum, lesblindum, eldri borgurum og öllum þeim, sem vilja stilla framsetningu veftexta eins og þeim hentar, aðgang að netinu. Þessi þjónusta getur orðið einhverjum lykill að upplýsingasamfélagi sem hefur verið lokuð bók áður.

Talið er að yfir 10% notenda eigi erfitt með lestur texta á vefsvæðum og felst þjónustan í því að notendur geta á einum stað stillt óskir sínar varðandi meðal annars letur- og liti og síðan notað þær stillingar á öllum vefsvæðum sem kjósa að tengjast þjónustu Stillingar.is.

Stillingar.is voru fyrr í vikunni kynntar á ráðstefnu SJÁ um aðgengismál á Netinu og vöktu mikla athygli enda þjónusta sem nýtist sjónskertum, lesblindum, eldri borgurum og öllum þeim sem vilja geta stillt framsetningu veftexta.

Meðal þeirra vefsvæða sem þegar hafa tengst þjónustunni eru felagsmalaraduneyti.is, tryggingamidstodin.is, obi.is og auðlesinn Mbl.is.

Auðvelt er fyrir vefi að tengjast þjónustu Stillingar.is og allra einföldustu tengingu tekur ekki nema 1-2 mínútur að setja upp. Nánar má lesa um þjónustuna á vefnum www.stillingar.is.

Frá opnun Stillingar.is

Félagsmálaráðherra og aðrir gestir við opnun Stillingar.is.








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica