Fréttir

Nýr vefur fyrir Bakkavör Group

10.11.2006

Þann 10. nóvember opnaði Hugsmiðjan nýjan vef fyrir Bakkavor Group í Eplica-kerfinu.

Bakkavör Group er leiðandi fyrirtæki á alþjóðlegum markaði með ferska tilbúna matvöru og framleiðslu. Fyrirtækið rekur 46 verksmiðjur og starfsmenn eru yfir 16.000 í sjö löndum.

Bakkavör Group valdi Hugsmiðjuna og Eplica-kerfið til að byggja framtíð sína á vefnum á, enda nýtur Hugsmiðjan trausts margra stærstu fyrirtækja og stofnana landsins.

Vefurinn nýtir allar helstu grunneiningar Eplica-kerfisins en auk þess nýlegar einingar fyrir birtingar fjármálaupplýsingar frá EuroLand (tilkynningar) og IcEx (gengi).

Auglýsingastofan Tunglið hannaði útlit vefsins og átti mjög gott samstarf við Hugsmiðjuna.

Hugsmiðjan óskar Bakkavör Group til hamingju með nýjan og glæsilegan vef.

Vefur Bakkavör Group.










litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica