Nýr vefur fyrir þjóðskrá
Í kjölfar þess að þjóðskrá var flutt frá Hagstofu Íslands til dómsmálaráðuneytis var vefur stofnunarinnar settur upp í Eplica-kerfinu með endurbættur útliti.
Í þjóðskrá eru færðar breytingar sem verða á högum manna s.s. fæðingar, nafngjafir, breytingar á hjúskaparstöðu, flutningar, andlát o.þ.h. Tekið er við tilkynningum fólks um búferlaflutninga, innanlands og milli landa, nafnagjafir barna og stofnun sambúðar. Ýmiss vottorð eru gefin út hjá Þjóðskrá s.s. fæðingarvottorð, vottorð um hjúskaparstöðu, sambúðarskráningu, búsetu, staðfestingu á dánardegi og samnorræn flutningsvottorð.
Nýi vefurinn er upplýsingavefur sem nýtir grunneiningar Eplica-kerfisins.
Hugsmiðjan óskar þjóðskrá til hamingju með nýja vefinn.

