Fréttir

Nýr vefur Kjararáðs

30.11.2006

Þann 30. október opnaði Hugsmiðjan nýjan vef fyrir kjararáð í Eplica-kerfinu. Kjararáð er arftaki kjaranefndar.

Kjararáð ákveður laun og starfskjör forseta Íslands, þingmanna og ráðherra, héraðsdómara og hæstaréttardómara. Auk þess ákveður ráðið laun og starfskjör annarra ríkisstarfsmanna sem svo er háttað um að laun þeirra geta ekki ráðist með samningum á venjulegan hátt vegna eðlis starfanna eða samningsstöðu.

Guðrún Zoëga er formaður kjararáðs.

Vefur Kjararáðs er ekki stór, en framsetning er skýr og aðgengi að upplýsingum gott.

Hugsmiðjan óskar Kjararáði til hamingju með nýjan og glæsilegan vef.

Vefur Kjararáðs.








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica