Fréttir

Glitnir velur Hugsmiðjuna

7.12.2006

Glitnir og Hugsmiðjan hafa gert með sér samning um að Hugsmiðjan sjái um viðmótshönnun, útlitshönnun og viðmótsforritun (vefun/html/css) á vef bankans.

Í hönnunarvinnunni felst m.a. í því að vinna að upplýsingaarkitektúr vefs Glitnis, viðmóti og útliti. Einnig eru allar nýjar aðgerðir hannaðar af Hugsmiðjunni.

Viðmótsforritun Hugsmiðjunnar felst m.a. í því að vefa allar nýjar síður (t.d. heimabankann) en einnig í því að fara yfir allt html og css og þróa það. Hér er um viðamikið verkefni að ræða sem mun bæta mikið alla þjónustu á vefnum.

Af hálfu Glitnis er um metnaðarfullt verkefni að ræða og þátttaka í því er mikil viðurkenning fyrir Hugsmiðjuna og starfsmenn hennar.

Vefur Glitnis.








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica