TR :: 70 ára afmæli og nýr vefur
Afmælisgjöf Tryggingastofnunar er nýr upplýsinga- og þjónustuvefur á slóðinni www.tr.is. Hann er unninn að öllu leyti af Hugsmiðjunni í Eplica-kerfinu. Í frétt á vefnum segir m.a.:
"Markmiðið við undirbúning nýja vefsins var að bæta þjónustu við alla þá sem eiga erindi við Tryggingastofnun. Lögð hefur verið alúð við að gera nýja vefinn lifandi, aðgengilegan og greinargóðan með tilliti til mismunandi þarfa væntanlegra notenda. Framundan eru spennandi tímar þegar stjórnsýslan og allt umhverfi hennar verður sífellt rafrænna. Nýi vefurinn er liður í nauðsynlegum undirbúningi þess að Tryggingstofnun geti tekið upp rafræna þjónustu í framtíðinni."
Hugsmiðjan óskar Tryggingastofnun ríksins til hamingju með þennan glæsilega og metnaðarfulla vef og þakkar gott samstarf á undirbúningstímabilinu.

