Fréttir

Latibær safnar verðlaunum og opnar nýjan vef

11.12.2006

Latibær hefur upp á síðkastið safnað verðlaunum, síðast hinum virtu BAFTA-verðlaunum. Og nú hefur verið opnaður nýr vefur sem er fyrst og fremst upplýsingavefur um fyrirtækið og starfsemi þess.

Latibær hefur lengi verið í viðskiptum við Hugsmiðjuna og er þessi nýi vefur, www.lazytown.biz, viðbót við þá vefi sem fyrir eru.

Hugsmiðjan hefur átt mjög ánægjulegt samstarf við starfsmenn Latabæjar við þetta stóra og metnaðarfulla verkefni. Gunnar Júlíusson, starfsmaður Latibæjar, sá um hönnun vefsins og er óhætt að segja að hún sé glæsileg og auðvitað í Latabæjarandanum.

Hugsmiðjan óskar Latabæ til hamingju með glæsilegan vef.

Nýr vefur Latabæjar.










litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica