Fréttir

Útlitshönnun Hugsmiðjunnar fyrir Icelandair tilnefnd til alþjóðlegra verðlauna

Technology For Marketing Awards 2007

13.12.2006

Hugsmiðjan sér um hönnun vefja Icelandair sem og bókunarvélarinnar fyrir pakkaferðir. Einnig hefur Hugsmiðjan séð um viðmótsforritun (vefun/css) á bókunarvélinni. Nú er vefur Icelandair kominn í úrslit, ásamt þremur öðrum vefjum, í samkeppni um best hannaða vefinn (Best website design of the year) hjá Technology For Marketing Awards 2007.

Það er Reynir Pálsson, hönnuður hjá Hugsmiðjunni, sem á heiðurinn að útliti vefsins. Af hálfu Icelandair hefur verið lagður mikill metnaður í vefinn og árangurinn er augljós. Vefurinn er bæði sérstaklega fallegur, en það sem skiptir ekki minna máli er að hann er mjög einfaldur og þægilegur í notkun.

Við hjá Hugsmiðjunni óskum Icelandair til hamingju með tilnefninguna og einnig samstarfsmanni okkar, Reyni Pálssyni hönnuði.

Um tilnefninguna.










litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica