Skemmtileg virkni á heimskorti
Heimskortið er unnið í Flash, sem gerir það kleift að birta upplýsingarnar á skemmtilegan hátt, en allar upplýsingar eru sóttar í vefþjónustu frá Eplica-kerfinu. Allar upplýsingar um löndin, fyrirtækin, þjónustu o.fl. er vistað í Eplica. Þar er hægt að breyta þessum upplýsingum og uppfærist það um leið í Flash-inu. Ef bætt er við upplýsingum um ný lönd þá virkjast þau samstundis í kortinu.
Þessi aðferð, að birta gögn sem eru unnin og geymd í Eplica en birt í Flash, er mjög spennandi fyrir marga viðskiptamenn okkar og er hægt að útfæra á marga vegu. Dæmið um heimskortið er aðeins einn notkunarmöguleiki af mörgum og þar er ímyndunarafl okkar sjálfra eina hindrunin.
Dæmi um upplýsingar sem mætti setja fram á þennan hátt geta verið:
- Starfsstöðvar fyrirtækis á Íslandi með viðeigandi upplýsingum (heimilisfang, sími, netfang, tengiliður ...)
- Eigandi að húsnæði sem hann leigir út getur birt teikningar á vefnum og sett viðeigandi upplýsingar við hvert pláss (stærð, aðstaða, laust/í útleigu ...)
- Hægt er að tengja Flash-myndir við vefkerfið og nota þær sem valmyndir.
- Og fleira og fleira.
